Prufurnar á myndinni hér að ofan eru prjónaðar úr sama garni, eru allar 20 lykkjur og jafnmargar umferðir. En prjónað var með mismunandi grófum prjónum. Þess vegna er stærðin svona ólík.
Í uppskriftum er gefin upp prjónafesta sem uppskriftin miðast við. Sumir prjóna lausar og sumir fastar en uppskriftin miðast við, sumir nota annað garn og aðra prjónastærð en uppskriftin miðast við. Þess vegna er oft nauðsynlegt að gera prjónafestuprufu og aðlaga uppskriftina að henni, þ.e.a.s. reikna uppskriftina upp á nýtt, svo flíkin/prjónlesið passi.

Setjum sem svo að þú ætlir að prjóna hringtrefil/kraga sem er 90 cm víður neðst skv. því sem segir í uppskriftinni. Fyrst í uppskriftinni segir: „DROPS HRINGPRJÓNAR NR 12 (80 cm) – eða sú stærð sem þarf til að 8 l[ykkjur] verði 10 cm á breidd.“ Seinna segir að trefillinn sé 90 cm víður og fitja eigi upp 72 lykkjur á hringprjón nr. 12. Þú gerir prjónafestuprufu (ert með aðra prjónastærð eða annað garn eða prjónar miklu fastar en gert er ráð fyrir) og kemst að því að 8 lykkjur eru 9 sentimetrar á breidd í þínu prjóni. Hvernig á þá að reikna út hve margar lykkjur þarf að fitja upp til að prjóna 90 cm stykki miðað við þína prjónafestu?
Einföld reikningsaðferð til að gera þetta er þríliða. Þá setur þú upp dæmið svona:
8 lykkur -> 9 cm (skv. þinni eigin prjónafestuprufu)
X lykkjur -> 90 cm
Í þríliðu tekur maður fyrst töluna fyrir ofan X. Síðan margfaldar maður með tölunni skáhallt á móti og deilir í útkomuna með tölunni beint á móti. Svona:
8 x 90 : 9 = 80
(8 lykkjur sinnum 90 sentimetrar deilt með 9 sentimetrum) = 80 lykkjur
Svo þú fitjar upp 80 lykkjur í stað 72 lykkja eins og segir í uppskriftinni.

Í uppskrift að húfu með tvöföldu perluprjóni er sagt að prjónafesta sé: 17 lykkjur og 30 umferðir með perluprjóni verði 10 x 10 cm. Þú ákveður að nota talsvert grófara garn og prjóna en þessi uppskrift gerir ráð fyrir og gerir prjónafestuprufu. Skv. henni eru 11 lykkjur í 10 cm breidd. Það er augljóst að prjónir þú nákvæmlega eftir fyrirmælum í uppskriftinni mun húfan verða alltof stór.
Í uppskriftinni stendur að húfan eigi að passa við höfuðmálið 53/55 cm, þitt höfuð er einmitt 54 cm að ummáli. Í uppskriftinni stendur að þú eigir að fitja upp 80 lykkjur.
Nú eru húfur oftast þrengri en höfuðmál svo þú byrjar á að reikna út hvert ummál húfunnar í uppskriftinni er, þ.e.a.s. hve margir sentimetrar þessar 80 lykkjur eru miðað við uppgefna prjónafestu. Með þríliðu er útreikningurinn svona:
10 cm - > 17 lykkjur
X cm -> 80 lykkjur
10 x 80 : 17 = 47
Það er greinilega gert ráð fyrir að prjónið sé vel teygjanlegt og húfan á því bara að vera 47 cm í ummál neðst, í þessari uppskrift.
Nú reiknar þú út lykkjufjöldann á þinni húfu, miðað við þína prjónafestu (11 lykkjur gefa 10 cm):
11 lykkjur - > 10 cm
X lykkjur -> 47 cm
11 x 47 : 10 = 51,7
Og fitjar svo upp 52 lykkjur í húfuna þína.

Þríliða er ágæt imbaaðferðir. En iil eru nákvæmar leiðbeiningar á íslensku um hvernig reikna má út heila uppskrift upp á nýtt eftir Christine Einarsson (Tínu), Kjarneðlisfræði 101 fyrir prjónara? (Hvernig umbreyta skal uppskrift þegar skipt er um grófleika á garni), á innihald.is. Krækt er í þessar leiðbeiningar af korktöflunni Stærðir á pinterest.com/prjon103 en bein slóð á leiðbeiningar Tínu er þessi:
http://www.innihald.is/heimili-og-fjolskylda/kjarnedlisfraedi-101-fyrir-prjonara