Gamaldags
tátiljur
Þetta er mjög gömul og vel þekkt aðferð til að prjóna inniskó/tátilijur sem eru sívinsælar. Þessi uppskrift er sambland af færeyskri lýsingu á svona tátiljuprjóni og tveimur íslenskum uppskriftum, með hliðsjón af norskri uppskrift af því sama.
Tátiljurnar sem hér er lýst eru prjónaðar úr Léttlopa, á prjóna nr. 4. Það fer meir en ein dokka af aðallit í þessar tátiljur.

*Fitja upp 18 lykkjur og prjóna slétt fram og til baka.
*Prjóna svo garðaprjón.
* Auka út eina lykkju fremst á prjóni í annarri hvorri umferð (þ.e.a.s. á réttunni á stykkinu) 4 sinnum. Þá verða komnar 22 lykkjur á prjóninn. Ég mæli með því að taka upp bandið milli 1. og 2. lykkju á prjóninum til að búa til aukalykkjuna. Þessi aðferð er sú fyrsta sem sýnd er á myndbandinu Prjónum útaukningar á vefnum Prjónum saman.
* Prjóna síðan 20 garða. Það er ágætt að merkja fyrsta garðinn eftir útaukningargarðana með nælu.
* Svo hefst laufamunstur á framhluta/tá.

Laufamunstur
Lögun laufanna byggist á styttum umferðum, þ.e.a.s. að skildar eru eftir óprjónaðar lykkjur á vinstri prjóni, auk mismunandi lykkjufjölda í aðallit og munsturlit. Þessar styttu umferðir forma líka tátiljuna. Prjónuð eru þrjú lauf.
Hvert lauf er prjónað svona:
12 dökkar lykkjur, 8 ljósar lykkjur, snúa við (og skildar eftir 2 óprjónaðar lykkjur á vinstri prjóni). sömu litir í sama lykkjufjölda prjónaður til baka.
11 dökkar lykkjur, 7 ljósar lykkjur, snúa við
10 dökkar lykkjur, 6 ljósar lykkjur, snúa við
9 dökkar lykkjur, 5 ljósar lykkjur, snúa við
8 dökkar lykkjur, 4 ljósar lykkjur, snúa við
7 dökkar lykkjur, 3 ljósar lykkjur, snúa við.
Þetta var fyrri helmingur laufsins og nú er prjónaður 1 dökkur garður yfir allar lykkjurnar. Seinni helmingur laufsins er spegilmynd hins og því er prjónað:
7 dökkar lykkjur, 3 ljósar lykkjur, snúa við
8 dökkar lykkjur, 4 ljósar lykkjur snúa við
o.s.fr. og endað á
12 dökkar lykkjur, 8 ljósar lykkjur og snúa við.
1 dökkur garður yfir allar lykkjurnar og svo tekið til við fyrri helming næsta laufs.
Sýnt í myndum er þetta svona (ath. að ekki eru allar umferðir sýndar - renndu músarbendli yfir hverja mynd til að sjá hvaða umferð er verið að sýna):

Seinni hlið tátiljunnar er prjónuð eftir laufamunstur þannig:
20 dökkir garðar
Síðan er tekin úr ein lykkja í lok prjóns (enda umferðar á réttu) í annarri hvorri umferð. Þetta er gert fjórum sinnum og þá eru 18 lykkjur eftir á prjóninum.
Prjóna einn garð.
Fella af (og skilja eftir langan spotta þegar klippt er á garnið til að sauma saman tátiljuna).
Þá lítur stykkið svona út:

Og svona samanbrotið (taktu eftir hvernig útaukning og affelling mynda hæl):
Tátiljan er saumuð saman að aftan (sjá myndband um samansaum á uppfit og affellingu) og neðan (sjá myndband um samansaum á garðaprjóni). Íslendingar hekla oft kant hringinn að ofan, með fastalykkjum í hvern garð, en ég heklað upp lykkjur milli garða og færði á prjón. Af því tátiljan var svolítið víð á mig heklaði ég 1 og 1 lykkju í tvær umferðir milli garða og hoppaði svo yfir eina umferð: Alls urðu lykkjurnar 38. (Ath. að fara aftan í uppheklaðar lykkjur sem færðar eru á prjón svo þær snúi rétt á prjóninum). Síðan prjónaði ég öfugan hring (andsælis) til að fá garð, felldi af venjulegan hring (réttsælis) og tyllti garðinum saman um leið og ég gekk frá endum.
Tilbúin tátiljan lítur svona út á fæti:
Tilbúin tátiljan lítur svona út á fæti:
Og nú er bara að vinda sér í að prjóna tátiljuna á hinn fótinn!