Svona inniskór eru upprunnir í Noregi og eru ýmist kallaðir „ömmuinniskór“ (mormors tøfler) eða bosnískir inniskór (Bosnia-tøfler). Sagnir herma að ónefnd flóttakona frá Bosníu og Hersegóvínu hafi flust til Florø í Noregi undir lok síðustu aldar. Til að endurgjalda greiðasemi vinnufélaga síns gaf hún henni mjög fallega inniskór sem móðir hennar hafði prjónað. Tvær norskar konur, Johanna Vartdal og Nelly Thorsnes, skrifuðu uppskriftina að sokkunum niður og síðan hefur þessi uppskrift orðið vinsæl flökkuuppskrift um allan Noreg ... og virðist breiðast víðar út.
Ég studdist við tvær mismunandi uppskriftir þegar ég prjónaði þessa sokka, sjá heimildir.
Garn: Eitthvert alpakka-garn sem mér sýndist passa við prjóna nr. 3½.
Prjón: Það er nóg að kunna garðaprjón til að prjóna þessa sokka.
Uppfit og ökklaband:
Fitja upp 44 lykkjur með aðallit (hvítum). Prjóna garðaprjón fram og til baka, alls 7 garða.
Skipta yfir í munsturlit (svartan) og prjóna 2 garða.
Prjóna 1 garð í aðallit.
(Ath. það má fitja upp færri lykkjur og prjóna færri garða ef prjónað er úr grófara garni á grófari prjóna. Aðalatriðið er að stykkið passi utan um ökkla þess sem ætlar að nota skóna.)

Munstur:
1. umf. Prjóna með munsturlit þannig: 1 lykkja tekin óprjónuð með því að stinga prjóni framan í hana og munsturlitaða garnið haft fyrir aftan lykkjuna, næsta lykkja prjónuð slétt með munsturlit, næsta lykkja tekin óprjónuð, næsta lykkja prjónuð slétt með munsturlit o.s.fr. Haldið er áfram að prjóna aðra hvora lykkju og taka aðra hvora ópjónaða uns 22 lykkjur hafa verið prjónaðar (þ.e. helmingurinn af lykkjunum á prjóninum).

Þegar 22 lykkjur hafa verið prjónaðar með þessum hætti er gerður blævængur:
Tekið er upp bandið milli 22. og 23. lykkju og sett á vinstri prjón (athugið að snúa ekki upp á bandið). Með hægri prjóni er fiskuð lykkja í munsturlit í gegnum þetta band, henni komið fyrir á vinstri prjón og svo prjónuð slétt (yfir á hægri prjón). Þetta er endurtekið uns 6 lykkjur hafa verið fiskaðar og prjónaðar gegnum bandið, þá er bandið látið falla af vinstra prjóni. Sjá myndband hér að neðan (ef myndbandið birtist ekki má sjá það á þessari slóð.)

Nú er búið að prjóna 6 svartar lykkjur gegnum lausa bandið og lausa bandinu er svo sleppt af prjóninum.
Svo er 1 lykkja í munsturlit prjónuð, ein lykkja tekin óprjónuð, næsta prjónuð, næsta óprjónuð o.s.fr. Fyrsta og síðasta lykkja á öllum prjónum í þessari mynsturumferð (1. umferð) eru ávallt teknar óprjónaðar.
2. umf. Óprjónaðar lykkjur teknar óprjónaðar, með sama hætti og áður (þ.e. með því að stinga hægri prjóni beint gegnum lykkjuna) en munsturlitaða garnið haft fyrir framan lykkjuna, önnur hver prjónaða lykkjan er prjónuð með munsturlit. Blævængslykkjurnar eru prjónaðar með munsturlit: Allar lykkjur eru alltaf prjónaðar sléttar.
3. umf. Allar lykkjur prjónaðar sléttar með aðallit.
4. umf. Allar lykkjur prjónaðar sléttar með aðallit. Þessar fjórar umferðir eru svo endurteknar svo oft sem þurfa þykir, þ.e.a.s. þar til síðasti blævængurinn nær fram á tá. Endað er á munsturumferðum (1. og 2. umf.)
Passa þarf vel að lykkjur í munsturlit standist alltaf á, þ.e. (í þessu tilviki) að svört prjónuð lykkja sé beint fyrir ofan svarta prjónaða lykkju í síðustu munsturumferð. Einnig þarf að gæta þess að munsturlitaða garnið sé alltaf á röngu prjónlessins þegar lykkja er tekin óprjónuð. Í hverri nýrri munsturumferð eru svörtu útaukningarlykkjurnar (úr síðasta blævæng) prjónaðar eins og hinar, þ.e. ein óprj. lykkja + 1 prjónuð í munsturlit endurtekið.
Þessar fjórar umferðir eru svo endurteknar svo oft sem þurfa þykir, þ.e.a.s. þar til síðasti blævængurinn nær fram á tá. Endað er á munsturumferðum (1. og 2. umf.) Passa þarf vel að lykkjur í munsturlit standist alltaf á, þ.e. að svört prjónuð lykkja sé beint fyrir ofan svarta prjónaða lykkju í síðustu munsturumferð. Í hverri nýrri munsturumferð eru svörtu útaukningarlykkjurnar (úr síðasta blævæng) prjónaðar eins og hinar, þ.e. ein óprj. lykkja + 1 prjónuð í munsturlit endurtekið.
Smám saman fer inniskórinn að líta svona út:

Og nógu langt er prjónað þegar blævængjaröð nær fram að tá (e.t.v. ætti að prjóna skóna enn styttri því þeir eru talsvert teygjanlegir - það verður að miða dálítið við garn og prjónafestu þegar þetta er ákveðið).
Sólinn
Á mínum sokkum hafði lykkjum fjölgað úr 42 í 110 lykkjur eftir alla blævængjaútaukninguna. Setja á merki á miðjan sólann þegar byrjað er að prjóna hann, þ.e.a.s. prjónaðar 55 lykkjur, sett merki, prjónaðar 55 lykkjur. Sólinn er prjónaður með garðaprjóni í aðallit. Þegar búið er að prjóna 3 garða er prjónuð umferð frá réttu þannig:
1 lykkja slétt, næstu 2 lykkjur sléttar saman, prjónað uns 6 lykkjur eru að merki og þá eru prjónaðar tvær lykkjur saman. Prjónað áfram 4 lykkjur fram yfir merki og þá tvær lykkjur saman. Prjónað til uns þrjár lykkjur eru eftir á prjóninum, þá tvær lykkjur saman og loks síðasta lykkjan. Af röngu er prjónað slétt alla leið til baka.
Þessi úrtaka (fyrir hæl og tá) er endurtekin þrisvar í viðbót. Þá hafa verið prjónaðir 7 garðar alls í sólann.
Svo er prjónuð hálf umferð af réttu, að merkinu. Þá standast prjónar á og hægt að lykkja eða sauma sokkana saman. Þetta lítur svona út:

Myndband sem sýnir hvernig lykkjað er saman má sjá á Garnstudio.com
Þegar búið er að lykkja saman sólann á einungis eftir að sauma skóinn saman að aftan. Myndband sem sýnir hvernig garðaprjónskantar eru saumaðir saman má sjá á Garnstudio.com.
Og þá líta inniskórnir svona út: