PRJ 103
Þetta er heimasíða prjónaáfanga í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nemendur eru hvattir til að skoða Pinterest töflu áfangans, þar sem má finna krækjur í kennsluefni og uppskriftir. Nemendum er sérstaklega bent á að leita fanga á DROPS design vefnum (krækt er í íslenska útgáfu hans) og Ravelry (það þarf að stofna aðgang að þeim vef) en finna má gífurlegt magn uppskrifta á þessum vefjum. Loks eru nemendur hvattir til að skrá sig í Facebook-hóp áfangans, PRJ103H15, þar sem hjálp og ábendingar verður að finna.
Nemendur eru hvattir til að skoða vel síðuna Prjonumsaman.com en þar eru mjög vönduð myndbönd með íslensku tali sem sýna ýmislegt sem gæti vafist fyrir jafnt byrjendum sem lengra komnum.
Hér eru krækjur í öll kennslumyndbönd á DROPS (garnstudio.no) í stafrófsröð.
- Kennsluáætlun PRJ 103 á haustönn 2015
- Könnun á forkunnáttu nemenda, lögð fyrir nemendur í PRJ 103 í fyrsta tíma
- Dæmi um útfyllt lokamatsblað og lokaeinkunn
Garnbúðin á Akranesi heitir Gallerí Snotra og er í Skagamollinu (á sama stað og Gallerí Urmull.